139. löggjafarþing — 155. fundur,  15. júní 2011.

minningarfundur í tilefni af 200 ára fæðingarafmæli Jóns Sigurðssonar forseta.

[11:07]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Háttvirtir alþingismenn. Góðir landsmenn. Alþingi kemur saman í dag til sérstaks hátíðarfundar til að minnast þess að 17. júní nk. eru 200 ár liðin frá fæðingu Jóns Sigurðssonar forseta.

Jón Sigurðsson skipar sérstakan heiðurssess í íslenskri sögu. Hann var forustumaður í sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar á 19. öld. Það var fátt í þjóðlífi Íslendinga sem Jóni var óviðkomandi, hann lét þar til sín taka og reyndi að hrinda málum í betra horf. Þannig lét hann sér annt um að efldar yrðu framfarir í atvinnuháttum, menntun og lífskjörum þjóðarinnar, ekki síður en að létta af henni ófrelsisböndunum.

Jón var líka einn fremsti vísindamaður í norrænum fræðum á sínum dögum. Það er athyglisvert að mörg útgáfuverkefna Jóns eins og fornbréfasafnið, lagasafn Íslands, skýrslur um landshagi o.fl., stuðluðu að því að gera stjórn landsins og sögu aðgengilega landsmönnum. Nú heitir þetta gagnsæ stjórnsýsla og má því segja að hann hafi einnig verið á undan sinni samtíð í þeim efnum.

Á þessum hátíðarfundi vill Alþingi því heiðra minningu Jóns sem fræðimanns. Fyrir fundinum liggur tillaga frá forsætisnefnd þingsins um að stofna prófessorsstöðu tengda nafni hans.

Alþingi mun minnast afmælis Jóns forseta enn frekar á næstu dögum. Ég vil fyrst nefna að í dag verður opnaður vefur á heimasíðu Alþingis helgaður þingstörfum Jóns Sigurðssonar. Þingmennskuferill Jóns nær yfir meira en 30 ára tímabil, frá því að hið endurreista Alþingi kom saman 1845 til ársins 1877.

Jón varð fljótt bæði hinn stjórnmálalegi leiðtogi þingsins og hinn formlegi forustumaður þess. Hann var lengi forseti Alþingis, forseti neðri deildar og forseti sameinaðs Alþingis við lok þingsetu sinnar. Hann hafði því mikil áhrif á þingstörfin og átti stóran þátt í að móta þau á fyrstu árum hins endurreista Alþingis.

Á vefnum um þingstörf Jóns verða birtar allar ræður sem Jón flutti þann tíma sem hann sat á Alþingi. Þá hafa Alþingistíðindi þessara ára verið skönnuð í heild sinni, bæði ræður og þingskjöl. Þau verða aðgengileg á þessum vef.

Á afmælisdegi Jóns Sigurðssonar, 17. júní, verður hátíðarsamkoma í þingsal til að minnast þess að 100 ár eru þá liðin frá því að Háskóli Íslands var stofnaður í þinghúsinu á aldarafmæli Jóns Sigurðssonar. Hann var í hópi þeirra sem helst beittu sér fyrir stofnun æðri menntastofnunar í landinu eða „þjóðskóla“ eins og Jón kallaði slíkan skóla.

Að lokinni hátíðarsamkomunni 17. júní verður Alþingishúsið opið almenningi. Þar verða til sýnis ýmsir sýningarhlutir er tengjast þingstörfum Jóns og starfsemi háskólans í þinghúsinu. Eins og þingmenn hafa orðið varir við á leið sinni til þessa fundar er nú unnið að uppsetningu þessarar sýningar.

Þá vil ég loks nefna að 19. júní verður athöfn í Jónshúsi í Kaupmannahöfn þar sem veitt verða í fjórða sinn verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta. Hæstv. forsætisráðherra Jóhanna Sigurðardóttir mun flytja hátíðarræðu við það tækifæri.