úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.
Forseti. Um síðari spurningu hv. þingmanns er það að segja að það veit ég ekki. Ég undirbjó ekki þetta frumvarp, ég tók við því sem umhverfisnefndarmaður. Ég var verkstjóri við umfjöllun um málið eins og hv. þingmaður veit vel. Það sem við gerðum í umhverfisnefnd var að við lásum okkur til í þessari skýrslu Evrópusambandsins um það hvernig einmitt þetta mál, actio popularis, væri statt í ýmsum löndum. Við hefðum kannski átt að hafa þessa vinnu ítarlegri, það getur vel verið. Það vill svo til að ég held að búið sé að samþykkja þetta mál alls staðar annars staðar á Evrópska efnahagssvæðinu nema hér fyrst og fremst vegna andstöðu þess flokks sem hv. þingmaður tilheyrir. Það hefði verið hægur leikur og við hefðum kannski átt að fara um lönd eða ríki Evrópusambandsins til að leita að þessu.
Fyrri spurningin var um hvort úrskurðarnefndin nýja geti teppst við einhvers konar mótmælakærur. Það getur auðvitað allt gerst en ég held, eins og við fórum yfir í nefndinni, að breytingarnar frá úrskurðarnefndinni um skipulags- og byggingarmál yfir í þessa og líkurnar sem við virtum fyrir okkur á þessu séu ekki þannig að hafa beri miklar áhyggjur.
Ég fékk frá umhverfisráðuneytinu lista yfir fjölda mála vegna mats á umhverfisáhrifum frá árunum 2000–2010. Það er mjög áberandi á þeim lista að málin voru ekki fleiri fyrir breytinguna þegar actio popularis var réttarreglan um mat á umhverfisáhrifum en eftir breytinguna, þannig að það bendir ekki til þess að kærum eigi eftir að fjölga mikið af þessum völdum. Hins vegar getur kærum og málum fjölgað af öðrum ástæðum sem raktar eru í greinargerð og raktar voru fyrir okkur í nefndinni.