endurskoðun laga um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra skýr svör. Þetta er gríðarlega mikilvægt mál. Það er afar mikilvægt, eins og við hljótum flest að gera okkur grein fyrir, að styrkja með öllum mögulegum ráðum almennan rétt og þjóðareign á auðlindum okkar. Þess vegna er mikilvægt að hraða þessari vinnu eins og kostur er.
Ég sagði áðan að tilefnin hrönnuðust upp. Nú síðast eru það kaup kínversks auðkýfings á Grímsstöðum á Fjöllum. Þessi kaup eru ekki lögleg, þau eru ólögleg og þurfa undanþágu. Það er ekki forsvaranlegt að veita slíka undanþágu þegar fyrir liggur að endurskoðun vatnalaganna hefur ekki farið fram, lögin eru einmitt í anda einkavæðingar. Við verðum að bera þá ábyrgð að skila sterkri almannaréttarlöggjöf (Forseti hringir.) áður en við veitum undanþágu til stórfelldra landakaupa og hugsanlega auðlindakaupa sem nú eru ef til vill í bígerð. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)