139. löggjafarþing — 158. fundur,  6. sept. 2011.

úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.

709. mál
[11:18]
Horfa

Mörður Árnason (Sf):

Forseti. Hér kemur að þeirri tillögu minni hluta umhverfisnefndar sem rætt var um áðan í stuttu spjalli um atkvæðagreiðsluna. Mér þykir miður að þurfa að gera málamiðlun af þessu tagi því að hin almenna málskotsaðild sprettur á kjarna Árósasamninganna þar sem tengd eru saman umhverfismál og mannréttindi. En það verður svo að vera, þessi ákvörðun var tekin, við tókum hana í meiri hluta umhverfisnefndar og stöndum að sjálfsögðu við hana. Þó að fingurinn fari á já í mínum líkama slær hjartað með Birgittu Jónsdóttur. [Kliður í þingsal.]