fullgilding Árósasamningsins.
Forseti. Þetta er eins og í fótboltanum, nú er seinni hálfleikur í atkvæðagreiðslunni um Árósasamningana. Þetta frumvarp er bandormur þar sem ýmsum lögum er breytt og þvert á það sem áðan var tautað um auknar flækjur í stjórnsýslunni er með þessu frumvarpi gert ráð fyrir því að fimm kæruleiðir, þ.e. úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála, úrskurðarnefnd um hollustuhætti og mengunarvarnir og úrskurðir umhverfisráðherra, sjávarútvegsráðherra og iðnaðarráðherra, séu sameinaðar í þessa einu úrskurðarnefnd. Það er von okkar sem að þessu stöndum og um þetta fjölluðum að þetta verði til þess að hraða málum. Við reyndum í hinu fyrra frumvarpi að ganga svo frá að málsmeðferð nefndarinnar yrði sem skjótvirkust. Hér er sem sagt verið að einfalda stjórnsýsluna en ekki flækja.