139. löggjafarþing — 159. fundur,  7. sept. 2011.

tilhögun þingfundar og tilkynning um dagskrá.

[10:31]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseti vill láta þess getið að gert verður hlé á þingfundi milli kl. 13 og 15 fyrir matarhlé og þingflokksfundi.

Kl. 15 í dag fer fram umræða utan dagskrár um matvælaöryggi og tollamál. Málshefjandi er hv. þm. Þorgerður K. Gunnarsdóttir. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Jón Bjarnason verður til andsvara. Umræðan fer fram skv. 2. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.