störf þingsins.
Virðulegi forseti. Ég held að við ættum bara að anda rólega yfir þessum áhuga Kínverja eða annarra aðila á fjárfestingum. Það er ekkert sjálfgefið í þessu máli frekar en mörgum öðrum. Það þarf að skoða þetta vandlega en við eigum ekki að slá þetta út af borðinu, alls ekki. Ef það er hægt að finna á þessu lausn sem við getum öll sætt okkur við, eða flest, eigum við að sjálfsögðu að fagna þessari fjárfestingu.
Hér var örlítið rætt um girðingar og tollamúra. Hv. þm. Þorgerður K. Gunnarsdóttir nefndi þetta. Það vill gjarnan verða þannig þegar við ræðum um tolla í þingsal eða á Íslandi að þá er eins og við séum eina landið í heiminum með tolla til að stýra inn- og útflutningi eða hvernig við orðum það. Það vill svo skemmtilega til, hv. þingmenn, að flest ríki eru með einhvers konar tolla.
Ég ætla að ræða aðeins þær upplýsingar sem komu fram í svari sem hv. þm. Einar K. Guðfinnsson fékk um afskriftir í bankakerfinu og þá staðreynd að lítill hluti þessara afskrifta er vegna heimilanna í landinu. Það liggur fyrir svart á hvítu að það hefur verið og er enn verulegt svigrúm til þess að leiðrétta lán heimilanna. Hins vegar hefur verið farin sú leið að afskrifa hjá fyrirtækjum. Það kann að vera að það hafi verið nauðsynlegt og sé gott líka að leiðrétta lán fyrirtækja en mér sýnist sem verið sé að afskrifa lán langt umfram það sem væri hægt að ætlast til varðandi heimilin. Það sem ég er að reyna að segja, frú forseti, er að við eigum núna að gera þá kröfu til ríkisstjórnarinnar sem aldrei fyrr að sest verði yfir þær fjölmörgu tillögur sem hafa verið lagðar fram í þinginu um hvernig hægt er að leiðrétta lán heimilanna. Það er ekki of seint að gera það. Við eigum að vinda okkur í þetta því að krafan er nú sem aldrei fyrr. Þær leiðir sem ríkisstjórnin lagði upp með virka ekki fullkomlega og því verðum við að fara í þetta mál.