139. löggjafarþing — 159. fundur,  7. sept. 2011.

gjaldeyrismál og tollalög.

788. mál
[20:09]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta efh.- og skattn. (Lilja Mósesdóttir) (U) (andsvar):

Herra forseti. Ég hef ekki svo miklar áhyggjur af því að við förum ekki nógu hratt í afnámið. Það sem ég hef mestar áhyggjur af er hvaða áhrif afnámið hefur á stöðu fyrirtækja og heimila. Ég vil sjá peningamálastefnu sem tryggir það að við gengisfall krónunnar hækki ekki lán fyrirtækja og heimila. Þess vegna legg ég mikla áherslu á að við innleiðum skatt á útstreymi og afnemum að einhverju leyti verðtrygginguna.

Við sendum að vissu leyti vafasöm skilaboð með því að framlengja hert gjaldeyrishöft til ársloka 2015. Við erum í sjálfu sér að gefa skilaboð um að þau verði hér til frambúðar eða þar til hagkerfið uppfyllir Maastricht-skilyrðin. Ég hef áhyggjur af þeim skilaboðum.