139. löggjafarþing — 159. fundur,  7. sept. 2011.

gjaldeyrismál og tollalög.

788. mál
[20:47]
Horfa

Ragnheiður Ríkharðsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni athugasemdir og ræðu. Mig langar að spyrja hann hvort hann deili þeirri skoðun með mér að sú aðferð löggjafans sem beitt er í þessu frumvarpi sé vafasöm því að frumvarpið sjálft felur í sér langa upptalningu á fjármagnshreyfingum sem lýstar eru ólögmætar.

Síðan er, undir settu stjórnvaldi Seðlabanka Íslands, veitt nánast ótakmörkuð heimild til að veita undanþágu frá bannákvæðum. Spurningin er hvort þetta framsal löggjafarvaldsins er, eins og margir telja, í andstöðu við ákvæði 2. gr. stjórnarskrár lýðveldisins, samanber lög nr. 33/1944, og hvort líka megi ætla að brotið sé gegn grundvallarreglu stjórnarskrárinnar um jafnræði og eignarrétt, þ.e. 65. og 72. gr., sem felur það í sér að borgarar eigi rétt á að hömlur á eignarréttindum þeirra ráðist af lögum fremur en geðþóttaákvörðun stjórnvalda við beitingu undanþáguheimilda.

Mig langar þar að auki að spyrja hv. þm. Sigurð Inga Jóhannsson í beinu framhaldi hvort eðlilegt geti verið að löggjafarvaldið framselji vald með þessum hætti og síðan að sami aðili sjái um reglusetningu, veitingu undanþága, eftirlit og rannsókn brota. Það er Seðlabanki Íslands sem fær þetta ótrúlega vald og Alþingi virðist í þann veginn að framselja það til þessarar undirstofnunar.