gjaldeyrismál og tollalög.
Virðulegi forseti. Ég held að í þingmannahópnum öllum séu mjög margir — ég ætla að leyfa mér að halda því fram að þeir finnist líka innan stjórnarliðanna — sem eru sammála þessari umræðu okkar og því mati sem fram þurfi að fara á Seðlabankanum, gjaldeyrishöftunum, þessu frumvarpi og þeim breytingum sem við ætlum að gera þar á. Það sem þvælist hins vegar fyrir er að hluti þingmanna, fyrst og fremst þingmenn Samfylkingarinnar, hefur í rauninni bundið sig við aðeins eina leið, eina áætlun, eitt plan og það er að ganga í Evrópusambandið og taka upp evru. Þeir hafa á mjög þröngsýnan hátt útilokað alla aðra kosti.
Ég held hins vegar að það sé nokkuð víðtæk skoðun, og ekki síst meðal landsmanna, að skoða eigi fleiri kosti. Menn verði að leysa málin til skamms tíma en horfa líka lengra fram í tímann og reyni að átta sig á hvað sé skynsamlegasta leiðin. Ein leiðin til skamms tíma litið gæti verið stjórnsýsluúttekt ásamt óháðri úttekt þar sem þessir þættir kæmu inn í.