gjaldeyrismál og tollalög.
Herra forseti. Ég kem hingað upp til að taka undir þau orð hv. þingmanns að við höfum ekki stundað málþóf í dag heldur þvert á móti, herra forseti, höfum við stundað eitthvað sem Samfylkingin kallar samræðupólitík. Við höfum rætt hérna öll þau atriði sem við erum óánægð með og reynt að finna hvernig við leysum eða bregðumst við þessari óánægju. Og, herra forseti, ég verð að lýsa því yfir að ég er mjög óánægð með að hér skuli ekki vera fleiri stjórnarliðar til að heyra þær leiðir sem við viljum fara til að koma þessu frumvarpi í gegn en þó þannig að því fylgi lausnir sem við getum sætt okkur við. Lausnir sem við höfum rætt hérna og komið okkur saman um í stjórnarandstöðunni eru þær að gerð verði úttekt, lagaleg og hagfræðileg úttekt á peningamálastjórnuninni og við höfum komið okkur saman um, alla vega ég og nokkrir framsóknarmenn, að sú úttekt eigi að fela í sér þrjú atriði sem eru úttekt á markmiði peningastefnunnar, þeim tækjum sem Seðlabankanum ber að nota og jafnframt þeim kostum sem þjóðin hefur varðandi gjaldmiðilinn.
Herra forseti. Ég óttast að þessi fjármálakreppa verði álitin tímabil hinna glötuðu tækifæra í sögunni. Ástæðan fyrir því er sú að frá hruni hefur verið keyrð nokkurs konar einstefnupólitík sem hefur falist í því að Ísland eigi að vera með krónu í höftum þar til hægt verði að taka upp evruna. Ég vil því spyrja hv. þm. Birki Jón Jónsson hvort hann sé sammála því að það sé hætta á að við séum á tímabili (Forseti hringir.) hinna glötuðu tækifæra.