139. löggjafarþing — 159. fundur,  7. sept. 2011.

ársreikningar.

698. mál
[22:44]
Horfa

Frsm. viðskn. (Álfheiður Ingadóttir) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ekki er búið að laga allt sem aflaga fór í aðdraganda hrunsins, það er mikið rétt hjá hv. þm. Pétri H. Blöndal og það eins þótt menn hafi beðist afsökunar á sínum þætti í þeim aðdraganda, eins og hann upplýsti okkur um að hann hefði gert, einn fárra þingmanna, vil ég meina. En hv. þingmaður var jú formaður efnahags- og viðskiptanefndar um árabil (PHB: Þetta er alþjóðlegt vandamál.) áður en til hrunsins kom.

Það er mikið rétt líka að menn töpuðu gríðarlega miklu hlutafé í hruninu og það er ekki neinn hlutabréfamarkaður kominn hér á aftur. Spurningin er hins vegar: Var þetta heilbrigður markaður? Og er kappsmál að byggja hann upp með sama hætti? Ég er ekki viss um að svo sé.

Eitt er víst að eftirlitskerfið í kringum fjármálamarkaðinn þarf að herða og endurskipuleggja. Það hefur verið reynt. Hv. viðskiptanefnd hefur allt frá hruni haft gríðarlega mörg, flókin og þung mál til umfjöllunar sem hafa miðað að því. En eins og ég sagði áðan hefur ekki enn verið farið í heildstæða endurskoðun á þeim lögum og eftirliti en þó er sífellt verið að bæta lögin. Þar kemur tvennt til, bæði reynslan frá hruninu hér heima en einnig nýtt regluverk frá Evrópusambandinu þar sem menn eru að draga lærdóm af því sem aflaga fór hinum megin hafsins.