139. löggjafarþing — 160. fundur,  8. sept. 2011.

fundarstjórn.

[11:27]
Horfa

Ólína Þorvarðardóttir (Sf):

Frú forseti. Ég ætla að leyfa mér að gera athugasemd við þá uppákomu sem varð hér áðan. Ég tek undir með hæstv. innanríkisráðherra, það er alvarlegur hlutur að meina þingmanni mál. Það er grundvallarréttur sem við höfum hér í þinginu ef við sjáum ástæðu til að bera af okkur sakir eða gera athugasemd við fundarstjórn forseta sem var í þessu tilviki nákvæmlega það sem hv. þm. Þráinn Bertelsson gerði. Hann bað um orðið undir liðnum um fundarstjórn forseta. Við höfum aðeins til þess eina mínútu og mér finnst það slæm þróun, sem hefur borið á hjá forsetum þingsins, að blanda sér í mál þingmanna á þessari einu mínútu sem þeir hafa til að gera athugasemd við fundarstjórn eða bera af sér sakir.

Hér á ekki að fara í manngreinarálit eða flokkaálit, þetta er bara spurning um málfrelsi þingmannsins og góða reglu á þingfundum almennt. Það er alvarlegur hlutur að meina þingmanni mál og mér finnst að forsetar eigi almennt að venja sig af þessari tilhneigingu.