málfrelsi þingmanna -- Magma-málið.
Virðulegi forseti. Ég tek undir þá kröfu hv. þm. Ólafar Nordal að hæstv. fjármálaráðherra verði boðaður nú þegar til þings til að veita munnlega skýrslu um Magma-málið og aðkomu sína að því. Fréttin í Morgunblaðinu í morgun hlýtur að vera rétt, enda byggir hún á gögnum úr fjármálaráðuneytinu. Fyrir nú utan það að hæstv. fjármálaráðherra virðist hafa brotið gegn flokkssamþykktum Vinstri grænna verða gögnin ekki skilin öðruvísi en svo að hæstv. fjármálaráðherra hafi komið í veg fyrir byggingu álvers í Helguvík á Suðurnesjum þar sem atvinnuleysið er hvað mest í landinu. Hæstv. fjármálaráðherra verður að gefa skýrslu og það verður líka að gefa öðrum hv. þingmönnum tækifæri til að fjalla um aðkomu hæstv. fjármálaráðherra að málinu, ekki síst hv. þingmönnum Samfylkingarinnar (Forseti hringir.) sem hafa kallað eftir atvinnuuppbyggingu, þingmönnum eins og hv. þm. Kristjáni Möller, Sigmundi Erni Rúnarssyni og Björgvini G. Sigurðssyni sem tók einmitt skóflustungu að álverinu í Helguvík. Þessi umræða verður að fara fram strax og það verður að kalla eftir þessari skýrslu.