málfrelsi þingmanna -- Magma-málið.
Virðulegi forseti. Fyrst aðeins út af orðum hv. þm. Þórs Saaris sem upplýsir hér í ræðustól að búið sé að boða til einhvers sem hann bendir réttilega á að er ekki til í þingsköpum, óformlegs fundar efnahags- og skattanefndar, óska ég eftir því við virðulegan forseta að hlé verði gert á þingfundi meðan sá nefndarfundur á sér stað enda er það alvanalegt að þegar ekki hefur verið leitað eftir samþykki um að halda nefndafundi á þingtíma sé hlé gert á fundi.
Varðandi skýrslubeiðni þá sem varaformaður Sjálfstæðisflokksins bað hér um ítreka ég hana. Ég þakka hv. þm. Álfheiði Ingadóttur kærlega fyrir leiðsögn hennar um hvernig á að óska eftir skýrslu. Ef hún hefur áhuga á að sú skýrsla sem hún tilgreindi hér verði lögð fyrir hvet ég hana til að óska eftir því. Við erum hins vegar að biðja um og fara fram á (Forseti hringir.) munnlega skýrslu hið fyrsta, um leið og hæstv. fjármálaráðherra kemur til baka, vegna þess að því er haldið hér fram að fjármálaráðherra landsins hafi komið (Forseti hringir.) í veg fyrir stórt verkefni í atvinnuuppbyggingu á Suðurnesjunum og það er það sem við viljum ræða.