139. löggjafarþing — 160. fundur,  8. sept. 2011.

verðbréfasjóðir, fjárfestingarsjóðir og fagfjárfestasjóðir.

351. mál
[12:08]
Horfa

Frsm. meiri hluta viðskn. (Álfheiður Ingadóttir) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir umfjöllun hennar um þetta mál og tek undir nánast allt sem hún sagði um nauðsyn þess að skerpa á lögum og reglum um fjármálakerfið. Ég er sannfærð um að það sé til mikilla bóta það skref sem í dag er stigið að við ljúkum þessari 2. umr. og lögfestum sérlög um verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði eins og hér er á dagskrá. Þetta er gríðarlega mikil breyting á regluverki frá því sem var fyrir hrun og það sem meira er að nefndin hefur hert verulega á öllum þeim skilyrðum sem voru sett í frumvarpinu og hvergi slakað þar á.

Það er líka rétt sem hv. þingmaður sagði að enn er beðið eftir heildarendurskoðun á lögum um fjármálafyrirtæki. Nú erum við reyndar að tala um önnur lög og það sérlög. Seint í gærkvöldi varð hér nokkur umræða um lagabreytingar á þessu sviði og ég lýsti því þá yfir að ég mundi beita mér fyrir því sem formaður hv. viðskiptanefndar að gert yrði aðgengilegt yfirlit yfir þær breytingar sem gerðar hafa verið á lögum og regluverki sem snerta fjármálamarkaðinn þar sem menn eru að reyna að draga lærdóm af því sem gerðist í hruninu og herða, skýra og skerpa regluverk. Það kann að vera að það taki einhvern smátíma að vinna slíka vinnu en ég tel að það sé rétt sem hv. þingmaður sagði að þegar slíkt yfirlit liggur fyrir þurfum við líka að leggja mat á árangur þeirra breytinga sem þó hafa verið gerðar. Það er mikið verk óunnið en við erum alltaf að stíga skref í rétta átt að mínu viti.