139. löggjafarþing — 160. fundur,  8. sept. 2011.

vatnalög.

561. mál
[13:46]
Horfa

Frsm. iðnn. (Kristján L. Möller) (Sf) (frh.):

Virðulegi forseti. Ég var kominn að þeim kafla í ræðu minni að skýra frá nefndaráliti hv. iðnaðarnefndar þar sem fjallað er vatnsnotkun til heimilis- og búsþarfa, iðnaðar og iðju án orkunýtingar.

Í III. kafla vatnalaga er fjallað um vatnsnotkun til heimilis- og búsþarfa, iðnaðar og iðju án orkunýtingar. Rétt er að hafa í huga að ekki eru lagðar til grundvallarbreytingar á ákvæðum kaflans frá gildandi vatnalögum en einstök ákvæði hans eru einfölduð og skýrð nánar.

Í 18. gr. frumvarpsins eru ekki gerðar efnisbreytingar á 17. gr. vatnalaga nema að því leyti að greinin fær nýja fyrirsögn. Í ákvæðinu er fjallað um heimild landeiganda til vatnstöku til heimilis- og búsþarfa og annarrar starfsemi sem stunduð er á eigin landareign. Heimildin til vatnstöku er takmörkuð við það sem þörf er á, samkvæmt ákvæðinu. Fram kom hjá umsagnaraðila að þessi afmörkun ákvæðisins kynni að hafa aðra merkingu í atvinnustarfsemi 21. aldar og þar af leiðandi veita afar opna heimild til vatnstöku án þess að hugað væri að áhrifum hennar á náttúru, og þá sérstaklega lífríki. Nefndin telur rétt að leggja á það áherslu að sá fyrirvari sem er í ákvæðinu er hinn sami, þ.e. eiganda landareignar er rétt að veita til sín vatni, þó þannig að öðrum sem eiga tilkall til vatnsins verði sem minnst tjón eða bagi að. Einnig vill nefndin benda á 7. gr. frumvarpsins en þar segir m.a. að manni sé óheimilt, nema sérstök heimild eða lagaleyfi sé til þess, að breyta vatnsbotni, straumstefnu eða vatnsmagni eða vatnsflæði, hvort sem það verður að fullu og öllu eða um ákveðinn tíma, svo og að hækka eða lækka vatnsborð. Það er samdóma álit nefndarinnar að hér sé um að ræða mikilvægt málefni en bendir á að annaðhvort þarf lagaheimild eða leyfi Orkustofnunar, samkvæmt 144. gr. frumvarpsins, til framkvæmda sem hafa áhrif á náttúru eða lífríki. Því er ekki um að ræða opna heimild til vatnstöku.

Í VI. kafla frumvarpsins er að finna ákvæði úr V. kafla um stíflugerð, VI. kafla um vatnsmiðlun, VII. kafla um varnir lands og landsnytja gegn ágangi vatna, VIII. kafla um þurrkun lands og XIII. kafla almenn ákvæði um vatnsvirki. Inntak þessara kafla er að meginstefnu til hið sama og til einföldunar hefur þeim verið safnað saman í einn kafla.

Í 51. gr. frumvarpsins er fjallað um stíflugerð til vatnsmiðlunar. Samkvæmt ákvæðinu þarf skilyrðislaust leyfi Orkustofnunar til vatnsmiðlunar eða breytinga á henni ef flatarmál miðlunarlóns að því loknu er 1.000 fermetrar eða stærra við hæstu vatnsstöðu. Fram kom hjá umsagnaraðila að þar sem hér er um að ræða framkvæmd sem leita þarf framkvæmdaleyfis sveitarfélags fyrir sé nauðsynlegt að slík tilvísun komi fram í ákvæðinu. Nefndin bendir á að framkvæmdir á grundvelli 51. gr. frumvarpsins eru réttilega leyfisskyldar skv. 13. gr. skipulagslaga, nr. 123/2010. Hins vegar eru önnur ákvæði frumvarpsins einnig háð framkvæmdaleyfi. Nefndin tók því þá afstöðu að vel færi á því að hafa almenna tilvísun í markmiðsgrein frumvarpsins, þ.e. að þar kæmi fram að samhliða þessum lögum giltu einnig skipulagslög, lög um mannvirki, náttúruverndarlög, lög um stjórn vatnamála sem og önnur lög, eins og við á hverju sinni um rétt almennings til vatns og vatnsréttindi landeigenda. Við meðferð málsins í nefndinni var einnig rætt hvort óvissa kynni að koma upp um hlutverk Orkustofnunar annars vegar og viðkomandi sveitarstjórnar hins vegar við veitingu leyfa og eftirlit með leyfisskyldri framkvæmd. Heimildir sveitarstjórnar við útgáfu framkvæmdaleyfis markast eins og fyrr segir af efni 13. gr. skipulagslaga og er megininntak framkvæmdaleyfis byggt á skipulagslegum forsendum. Ekki er því um að ræða breytingu á hlutverki sveitarfélaga. Nefndin telur því ólíklegt að óvissa verði um hlutverk sveitarstjórnar annars vegar og Orkustofnunar hins vegar þar sem Orkustofnun styðst við aðrar réttarheimildir við útgáfu leyfa. Byggingarleyfi á grundvelli mannvirkjalaga lýtur að því hvort mannvirkið uppfylli hönnunarkröfur og forsendur. Sú gagnrýni kom einnig fram hjá umsagnaraðilum að óeðlilegt væri að miða leyfisskyldur til vatnsmiðlunar eða breytingar á henni við vatnsflöt miðlunarlóns þar sem vatnsmiðlun hefur allajafna í för með sér mikla röskun vatnabúskapar á framkvæmdasvæðinu. Flatarmál lónsyfirborðs skipti ekki endilega höfuðmáli í þessu sambandi. Rétt er að skiptar skoðanir eru á þessu viðmiði sem frumvarpið kveður á um en nefndin telur hins vegar eðlilegt að sett sé viðmið þar sem dregin eru mörk milli tilkynningarskyldu og afdráttarlausrar leyfisskyldu. Nefndin bendir á að ef miðlunarlón er stærra en 1.000 fermetrar er það leyfisskylt en ef það er minna er skylt að tilkynna það til Orkustofnunar. Nefndin vísar einnig til þess að frumvarpið gerir ráð fyrir að í lögunum verði ákvæði þess efnis að sett verði reglugerð um upplýsingar sem skila þarf með leyfisumsókn annars vegar og tilkynningarskyldu hins vegar. Telji Orkustofnun að lón sem búið er að tilkynna um sé það umfangsmikið að fara beri með það svipað og lón sem er leyfisskylt, t.d. setja einhver skilyrði, getur stofnunin gert það, láti hún framkvæmdaraðila, þann sem tilkynnti, vita um það innan fjögurra vikna. Þá verður líka að benda á að skyldan til að sækja um leyfi er ekki verulega meira íþyngjandi en tilkynningarskyldan, a.m.k. ekki hvað tímafrestinn varðar, því að Orkustofnun ber að afgreiða leyfi innan átta vikna.

Fjallað er um breytingar á vatnsfarvegi í 54. gr. frumvarpsins. Við meðferð málsins í nefndinni kom fram að mikilvægt væri að vísa til þess að ákvæði skipulagslaga um framkvæmdaleyfi gildir þegar um breytingu á vatnsfarvegi er að ræða. Nefndin vill í þessu sambandi árétta að ákvæði skipulags- og mannvirkjalaga gilda um fyrrgreindar breytingar sem og önnur löggjöf sem við á, samanber 38. gr. náttúruverndarlaga, er fjallar um leyfisumsókn til Umhverfisstofnunar, sé hætta á að friðlýstum náttúruminjum verði spillt. Meiri háttar breytingar á farvegi eru framkvæmdaleyfisskyldar og verða jafnframt að samræmast skipulagi á viðkomandi landsvæði. Í 2. mgr. 54. gr. er kveðið á um heimild viðeigandi stjórnvalds til að ráðast í framkvæmdir skv. 1. mgr., að fengnu leyfi Orkustofnunar. Heimildin er bundin við að þetta sé gert til að verja fasteignir eða önnur mannvirki sem varða almannaheill. Það má leiða að því líkur að orðalag ákvæðisins geri ráð fyrir að almannahagsmunir geti einungis falið í sér spjöll á fasteignum eða öðrum mannvirkjum en ekki friðlýstum náttúruminjum. Leggur nefndin því til breytingar á ákvæðinu því til samræmis. Nefndin bendir einnig á að ákvæði 2. mgr. 54. gr. tekur ekki til bráðaástands, en ef slík tilvik koma upp ber að líta til þeirra sjónarmiða sem gilda um neyðarrétt.

Kveðið er á um aðgæsluskyldu í 80. gr. frumvarpsins. Hér er um að ræða almenna aðgæsluskyldu mannvirkja og framkvæmda, en reglan á sér m.a. fyrirmynd í 2. mgr. 24. gr. laga nr. 57/1998, um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu. Við meðferð málsins kom fram að reglan kvæði ekki á um skyldu til að sýna aðgæslu gagnvart náttúrunni við framkvæmdir né að forðast að valda tjóni á henni. Nefndin tekur undir þessi sjónarmið en þau eru m.a. í samræmi við varúðarregluna sem er ein af meginreglum umhverfisréttar. Varúðarreglan á við þegar liggur fyrir að framkvæmd muni líklega valda alvarlegu eða óbætanlegu umhverfistjóni en ekki er hægt að sanna það vísindalega. Þá ber að beita þeim aðgerðum sem nauðsynlegar teljast til þess að koma í veg fyrir slíkt tjón og er óheimilt að bera fyrir sig skort á vísindalegri fullvissu um að tjón sé yfirvofandi. Nefndin leggur til breytingu á ákvæðinu í þessu tilliti.

Í IX. kafla laganna er fjallað um óhreinkun vatna. Í frumvarpinu er ekki um að ræða efnislega breytingu á reglum um óhreinkun vatna en í samræmi við nútímahugtakanotkun er notað í frumvarpinu hugtakið mengun, en það er skilgreint í 1. gr. frumvarpsins. Fram kemur í 56. gr. frumvarpsins að óheimilt er að menga vötn eða láta í þau eða svo nærri þeim að hætt sé við að í þau berist efni, hlutir og lífverur sem spilla mundu eðlis- eða efnaástandi vatnsins, lífríki þess og nánasta umhverfi. Kveðið er á um í 2. mgr. 56. gr. að umhverfisráðherra geti veitt undanþágu frá því banni sem mælt er fyrir um í 1. mgr. sömu greinar, í samræmi við lög þar að lútandi. Við meðferð málsins í nefndinni voru lagðar fram þær tillögur að 2.–4. mgr. 56. gr. yrðu felldar brott þar sem samkvæmt reglugerðum um mengun vatns og grunnvatns sem eiga stoð í lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, er óheimilt að menga vötn að meginstefnu til og undanþágur skilgreindar með stoð í sömu lögum. Vert er að hafa í huga að umhverfisráðherra hefur ríkar heimildir samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir til að veita undanþágur, þar með talið frá starfsleyfum. Nefndin leggur því til að 2.–4. mgr. verði felldar brott. Nauðsynlegt er þó að meginreglan um að óheimilt sé að menga vötn, samanber 1. mgr. 56. gr. frumvarpsins, haldi sér þar sem hennar er hvergi getið í lagasetningu.

Um almenna umferð um vötn segir:

Fjallað er um almenna umferð um vötn í XII. kafla gildandi vatnalaga. Í II. kafla frumvarpsins er að finna almenna reglu um vatnsréttindi almennings, samanber 11. gr. frumvarpsins, en hér er þessi réttur útfærður enn frekar. Fjallað er um heimild til að fara um vötn og til afnota af vatnsbökkum í 67. gr. frumvarpsins en þar segir að öllum sé heimil för, þar með talið á farartækjum, um vötn, einnig á ís, með þeim takmörkunum sem lög kveða á um. Fram kom hjá umsagnaraðilum að þörf væri á því að takmarka þessa heimild nánar til verndar náttúru eða lífríki eða vegna mannvirkja í eða við vatn. Nefndin tekur undir þetta og leggur til varúðarákvæði, þ.e. að heimilt verði að fara um vötn og til afnota á vatnsbökkum en þó þannig að það valdi ekki truflun á veiðum manna. Sambærilegar breytingar voru einnig lagðar til við 11. gr. frumvarpsins. Einnig komu fram ábendingar um að ákvæði um umferðarrétt ætti betur heima í náttúruverndarlögum en vatnalögum. Með hliðsjón af gildissviði frumvarpsins telur nefndin óráðlegt að fella ákvæði um almenna umferð um vötn úr vatnalögunum. Hins vegar sé rétt að hafa þessi sjónarmið í huga við endurskoðun á náttúruverndarlögunum, en bent hefur verið á að fyrrgreind ákvæði vatnalaga eigi betur heima þar sem safnað er saman þeim ákvæðum er varða almannarétt.

Samkvæmt frumvarpinu er lagt til að XIV. kafli vatnalaganna verði felldur brott en ákvæði hans flytjist í aðra kafla, samanber VI. og XV. kafla frumvarpsins. Við meðferð málsins komu fram athugasemdir að þar sem 133. gr. laganna væri felld á brott skorti að útfæra meginreglu 2. mgr. 7. gr. Þetta hefði í för með sér opna heimild til handa landeigendum til tiltekinna framkvæmda án tillits til þess hvaða áhrif þær hefðu. Nefndin tekur ekki undir þessar athugasemdir. Vert er að hafa í huga að 2. mgr. 7. gr. frumvarpsins er bannregla. Lagaheimild fyrir einhverju sem hefur áhrif á það sem upp er talið í ákvæðinu yrði væntanlega skýrð þrengjandi í samræmi við almennar lögskýringarreglur. Nefndin bendir á að rétt sé að taka mið af því sem fram kemur í breytingartillögu um markmiðsákvæði laganna, sem og því sem talið er upp í 4. mgr. 144. gr., samanber 79. gr. frumvarpsins. Þar segir að Orkustofnun sé heimilt að setja skilyrði fyrir starfsemi og framkvæmdum sem taldar eru nauðsynlegar af tæknilegum ástæðum eða ef ætla má að framkvæmdir eða starfsemi geti spillt þeirri nýtingu sem fram fer í eða við vatn eða möguleikum á að nýta vatn síðar. Slík skilyrði skulu vera í samræmi við markmið laganna, reglugerðir og vatnaáætlun samkvæmt lögum um stjórn vatnamála. Heimild Orkustofnunar til að setja slík skilyrði nær þó ekki til starfsemi og framkvæmda á friðlýstum svæðum sem háðar eru leyfi Umhverfisstofnunar. Nefndin vill einnig benda á að önnur löggjöf, svo sem náttúruverndarlög, hafa einnig áhrif í þessu sambandi.

Virðulegi forseti. Ég sé að tími minn er búinn. Mál þetta er mjög yfirgripsmikið og stórt, breyting á þessum góðu lögum frá 1923, og ég hefði viljað fara yfir nokkra kafla sem eftir eru í nefndarálitinu; Eignarnám og bætur, Stjórnsýsla og Ýmis ákvæði. Ég vísa því til útprentaðs nefndarálits.

Að lokum vil ég segja, virðulegi forseti, að nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð er grein fyrir hér að framan og lagðar eru til í sérstöku þingskjali, þ.e. á þskj. 1823.

Þetta var gert á Alþingi, 22. ágúst á þessu ári (Forseti hringir.) og auk mín sem hér stendur standa að nefndarálitinu hv. þingmenn Álfheiður Ingadóttir, Magnús Orri Schram, Tryggvi Þór Herbertsson, með fyrirvara, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Margrét Tryggvadóttir, með fyrirvara, Gunnar Bragi Sveinsson, með fyrirvara, Þráinn Bertelsson, og Jón Gunnarsson, með fyrirvara.

Virðulegi forseti. Ég hef ekki lokið máli mínu en ég verð að hætta núna.