139. löggjafarþing — 160. fundur,  8. sept. 2011.

vatnalög.

561. mál
[15:45]
Horfa

Kristján Þór Júlíusson (S) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Eins og kom ágætlega fram í máli hans og framsöguræðu formanns iðnaðarnefndar, hv. þm. Kristjáns Möllers, ríkti um þetta allgóð sátt í nefndinni og ber þá nokkuð nýrra við, ekki síst í ljósi þess hvernig umræða síðustu ára um þessa hluti hefur verið. Allt frá árinu 2006, ef ég man rétt, fóru deilur um þetta að magnast en eins og tveir hv. þingmenn hafa talað virðast þær deilur meira og minna komnar í jörð.

Ég tók hins vegar eftir því að í athugasemdum við vatnalagafrumvarpið er gert ráð fyrir að við yfirferð annarrar löggjafar, eins og þar er sagt, svo sem laga um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu sé ætlunin að samræma réttarreglur á þessu sviði og í þeim anda sé þetta frumvarp lagt fram. Meiningin, eins og kemur fram í athugasemdunum, er sú að styrkja almannarétt og samfélagslegt eignarhald á vatni.

Mig langar að forvitnast um það hjá hv. þingmanni hvort þetta atriði hafi verið rætt í nefndinni og hver skoðanaskipti og hver skilningur iðnaðarnefndar er á þeim athugasemdum við frumvarpið sem komu inn til nefndarinnar og hvort iðnaðarnefnd líti svo á að tillaga hennar til þingsins um staðfestingu þessa frumvarps sé undir því fororði að fram undan sé þá smíði nýrrar heildarlöggjafar á þessu sviði sem taki til og verði miðuð út frá þeim sjónarmiðum sem ég gat hér um.