139. löggjafarþing — 160. fundur,  8. sept. 2011.

lengd þingfundar.

[16:07]
Horfa

Margrét Tryggvadóttir (Hr):

Forseti. Ég hef fullan skilning á því núna þegar við eigum bara fjóra þingdaga eftir samkvæmt starfsáætlun að menn vilji hafa fundi fram á kvöld til að geta lokið málum. Mér finnst hins vegar tími þingsins ekki hafa verið nýttur neitt sérstaklega vel í dag. Ég velti fyrir mér hver sé tilgangurinn með því að hafa kvöldfund ef hér á tala um fundarstjórn forseta í allt kvöld. Ég ætla að sitja hjá við þessa atkvæðagreiðslu.