vatnalög.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Ragnheiði Ríkharðsdóttur ágæta ræðu. Í ræðu minni hér á eftir verð ég sjálfsagt á svipuðum nótum og tveir eða þrír síðustu ræðumenn enda eigum við það öll sammerkt að hafa áður starfað á vettvangi sveitarstjórnarstigsins.
Mér sýndist, þegar ég fór yfir breytingartillögur hv. iðnaðarnefndar, að menn hafi fjallað um ákvæðið sem hv. þingmaður nefndi í 78. gr. varðandi stjórnsýslu umhverfisráðuneytisins og Umhverfisstofnunar, og lagt til að það verði fellt út, einmitt á grundvelli þess sem var í frumvarpinu. Í breytingartillögunum, í sambandi við markmiðskaflann, eru skipulagslög nefnilega nefnd á einum stað. Ég man ekki eftir að hafa séð minnst á ný skipulagslög í frumvarpinu né heldur sveitarstjórnir sem þó fara augljóslega með framkvæmdaleyfisvald á þessu stigi.
Mér hefur fundist það vera dálítil lenska að þegar ríkisvaldið setur hér reglur gleymir það hinu stjórnsýslustiginu í landinu. Þegar verið er að setja nýjar reglur um nánast hvað sem er, hvort sem það er kræklingarækt eða vatnalög eins og hér, finnst mér sérkennilegt að hægt sé að gleyma því. (Forseti hringir.) Mig langar að fá sjónarmið þingmannsins á því hvort (Forseti hringir.) við þurfum ekki að fara að vanda vinnu löggjafans (Forseti hringir.) gagnvart hinu stjórnsýslustiginu í (Forseti hringir.) landinu.