vatnalög.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ásbirni Óttarssyni fyrir fyrirspurnina og viðbrögðin við ræðunni.
Ég tel mjög mikilvægt að við þessa reglugerðarsmíð verði haft raunverulegt samráð við sveitarfélögin. Ég tel að í lögunum hefði þurft að koma skýrt fram, þar sem það á við, hvenær skipulagslögin taka yfir og hvenær þau gilda og hvenær framkvæmdaleyfi Orkustofnunar á við. Ég held reyndar að ef menn færu leið skipulagslaganna, um að auglýsa eftir athugasemdum, væri eðlilegast að sveitarfélögin gæfu út framkvæmdaleyfi en ríkisstofnanirnar kæmu með athugasemdirnar þar inn, að það væri sem sagt ekki háð því að þau gæfu sér leyfi. Það var það sem ég óttaðist einna mest í kræklingaræktarlögunum þar sem einir tíu eða tólf aðilar áttu að veita umsagnir áður en einhver einn gæfi leyfi, að það tæki allt of langan tíma.
Ég held að allir séu glaðir yfir því að menn hafi náð saman í þessu erfiða máli sem hefur klofið stjórnmálaflokkana í fylkingar og kannski líka fólkið í landinu. Þó að við höfum náð sátt um málið þarf það, til þess að við séum fullviss um að við séum að gera rétt, að fara til umfjöllunar í iðnaðarnefnd að nýju. Þar þarf að fjalla um helstu ágreiningsatriði þannig að andi laganna, sú hugmynd um hvað menn vilja, komi skýrar fram í framhaldsnefndaráliti en nú er. Þar hefur þó margt gott verið gert, og í síðasta nefndaráliti sýnist mér að menn hafi lagfært það sem menn töldu sig geta gert.