vatnalög.
Virðulegi forseti. Ég vil bara fullvissa hæstv. forseta um það að vegna biturrar reynslu hv. þm. Péturs H. Blöndals hérna áðan, sem var sjónarmun á eftir ræðumanni að biðja um orðið, gætti ég þess mjög rækilega að það væri tryggt að áður en hv. þm. Birkir Jón Jónsson segði sitt síðasta orð í ræðustól að þessu sinni væri ég búinn að biðja um orðið til að veita andsvar. Ástæðan er einfaldlega sú að hv. þingmaður hefur á margan hátt einstæða þekkingu á forsögu þessa máls. Hann fór yfir það áðan hvernig málin voru á sínum tíma lögð upp þegar lagt var fram frumvarp sem ég hygg að hafi síðan flestum að óvörum orðið heilmikið deiluefni. Síðan fór af stað ákveðið ferli sem menn geta haft ýmsar skoðanir á og niðurstaðan eftir nokkuð mörg ár, ætli það séu ekki ein fimm ár, er sú að hér liggur fyrir frumvarp sem er í raun og veru bara nútímaútgáfa af lögum sem hafa gilt í nærri 90 ár.
Ég hef verið dálítið hugsi yfir þessu í jákvæðum skilningi þess orðs. Við höfum verið að deila og þrátta um mál sem var kannski engin ástæða til að deila um.
Nú vil ég spyrja hv. þingmann vegna þess að hann þekkir forsöguna og kemur úr Framsóknarflokknum, en ráðherra þess flokks flutti á sínum tíma það frumvarp sem varð þetta mikla deiluefni, hvort hann telji að með þessari löggjöf sé í raun og veru verið að innsigla þá hugsun sem ætlunin var að stæði á bak við löggjöfina eins og hún var á sínum tíma samþykkt þó að um það mál yrði svona mikill ágreiningur.