139. löggjafarþing — 160. fundur,  8. sept. 2011.

Stjórnarráð Íslands.

674. mál
[22:51]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta allshn. (Vigdís Hauksdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er nú svo þegar hæstv. forsætisráðherra kemur í andsvör við mig þau rúmu tvö ár sem ég hef setið á Alþingi byrjar ráðherrann yfirleitt með þessum orðum: Málflutningur þingmannsins er ekki boðlegur. (Forsrh.: Hann er það ekki.) Ef hæstv. forsætisráðherra finnst málflutningur minn ekki boðlegur verður hún að eiga það við sig. Hér tala ég sem frjáls manneskja, sem þingmaður Framsóknarflokksins. Ef forsætisráðherra líkar ekki sá málflutningur getur hæstv. forsætisráðherra staðsett sig einhvers staðar annars staðar í húsinu.

Mig langar til að benda hæstv. forsætisráðherra á það sem hún segir að með frumvarpi þessu eigi að fá skilvirkari og markvissari vinnubrögð, að stjórnsýslan og framkvæmdarvaldið geti skipulagt sig betur og verið sveigjanlegra. Auðvitað sjá það allir þar sem öll völdin verða á einni hendi. Verið er að leggja til að hér verði starfandi forsætisráðherra með nafnlausa undirráðherra og án nokkurra skilgreininga hvaða verkefni þeim verða falin án laga. Auðvitað er það ákjósanleg staða fyrir forsætisráðherra að hafa alla þræði í hendi sér.

Það sem ég er að gagnrýna með þessu nefndaráliti er framsal löggjafans. Farið er fram á að löggjafinn framselji vald til framkvæmdarvaldsins. Þá segi ég: Hvað með eftirlitshlutverk Alþingis? Og af hverju er farið fram með þetta víðtæka lagasetningarframsal? Hvernig getur hæstv. forsætisráðherra rökstutt að það fyrirkomulag sem kemur fram í frumvarpinu sé í lagi?

Varðandi ríkisbáknið er það svo að þó að búið sé að fækka 20% af stofnunum hefur enginn sparnaður í ríkisrekstri orðið. Það sýna fjárlög ársins 2009 og 2010. Venjulega þarf að bæta við kostnaði þegar ríkisstofnanir eru sameinaðar vegna t.d. þeirrar röskunar sem verður á starfi þeirra.