Stjórnarráð Íslands.
Virðulegi forseti. Hv. þm. Þór Saari hefur nú lýst fyrir okkur hvernig staðið hefur verið að undirbúningi þessa frumvarps. Hann sagði fyrr í kvöld að það hefði þurft að undirbúa þetta mál betur, það hefði átt að vinna það með sérfræðingum og efna síðan til opinnar umræðu sem hefði staðið í á að giska ár.
Síðan lýsti hann þessu frumvarpi þannig að það væri eins konar tilraun, með öðrum orðum er það frumvarp sem við erum hér að ræða, frumvarp um Stjórnarráðið sjálft, sem hv. þingmaður sagði að væri veigamikið frumvarp, einhvers konar frumvarp í tilraunaglasi.
Nú spyr ég hv. þingmann: Finnst honum í raun og veru frambærilegt að koma með frumvarp um sjálft Stjórnarráðið í þessum búningi? Hann lýsti því áðan að nefndarmenn hefðu orðið að taka frumvarpið á hné sér og skrifa það meira og minna upp að nýju og hann sagði síðan og vísaði til tiltekinna fyrirliggjandi breytingartillagna, jöfnum höndum frá honum sjálfum og þingmönnum Hreyfingarinnar og breytingartillagna sem væru fluttar af meiri hlutanum með einhvers konar fyrirvörum: Ef þessar breytingar ná ekki í gegn er sennilega verr af stað farið en heima setið.
Til hvaða breytingartillagna er hv. þingmaður að vísa? (Forseti hringir.) Er hv. þingmaður að vísa til sinna eigin breytingartillagna eða er hann að vísa til einhverra tiltekinna breytingartillagna (Forseti hringir.) sem getur að líta í meirihlutaáliti nefndarinnar?