139. löggjafarþing — 161. fundur,  12. sept. 2011.

frumvarp um Stjórnarráðið.

[10:47]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (F):

Hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra gæti vonandi andað léttar ef ég væri forsætisráðherra og er ekkert útilokað að gera ráðstafanir í þá veru ef það leysir málið að einhverju leyti.

Hæstv. ráðherra hefur margítrekað þá skoðun sína að með þessu frumvarpi sé í raun vegið að stöðu þingsins og of mikið vald fært til framkvæmdarvaldsins. Hæstv. ráðherra bendir réttilega á að við þessu hafi verið varað og að menn hafi ætlað að snúa við þessari þróun frekar en að halda lengra áfram í þá átt. Er ekki eðlilegt í ljósi þessa að mati hæstv. ráðherra að hann fái stuðning í afstöðu sinni frá eigin samflokksmönnum, Vinstri hreyfingunni – grænu framboði? Er það ekki í samræmi við vilja þeirrar hreyfingar að gera breytingar í þá veru að efla heldur stöðu þingsins á kostnað ríkisstjórnarinnar en öfugt? Hver er afstaða hæstv. ráðherra til þess ef hans eigin flokksmenn (Forseti hringir.) styðja hann ekki í þessu máli?

(Forseti (ÁRJ): Forseti minnir hv. þingmenn á að beina máli sínu til forseta þingsins úr ræðustóli.)