139. löggjafarþing — 161. fundur,  12. sept. 2011.

ummæli forseta Íslands.

[10:51]
Horfa

forsætisráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég ræddi aðeins þetta mál í fjölmiðlum fyrir helgi og lét koma fram að ég teldi að forseti Íslands hefði vegið ómaklega að stjórnvöldum af forseta Íslands. Ég sagði að ég mundi ræða það mál við forsetann. Ég hef ekkert meira um það mál að segja á þessu stigi málsins.