vatnalög.
Virðulegi forseti. Hér eru að verða nokkur tímamót, nú virðist stefna í að Alþingi muni að mestu leyti styðja ný vatnalög. Deilan hefur staðið allt frá því í byrjun síðustu aldar og ágreiningur hefur verið allt frá landnámi þannig að það er mikið afrek hjá iðnaðarnefnd undir formennsku hv. þm. Kristjáns Möllers að það virðist ætla að hafast í sátt og samlyndi.
Aðeins einn skugga ber á þetta, þ.e. orð hæstv. iðnaðarráðherra um að nú sé kominn tími til að fara að endurskoða eignarrétt og annað slíkt í sambandi við auðlindir og þá séu vatnalögin þar undir.
Þetta er hið besta mál sem ég mun styðja.