Stjórnarráð Íslands.
Virðulegi forseti. Sífellt skal stjórnarliðið enda ræður sínar á því að hnýta í Framsóknarflokkinn og Sjálfstæðisflokkinn en það er einhver nýr upptaktur í þinginu á þessum hauststubbi og sífellt verið að kalla eftir tillögum frá stjórnarandstöðunni varðandi stjórnarráðsmálið. Það hefur verið svo og ég hef svarað því á þann veg að Framsóknarflokkurinn hefur svo sannarlega komið með tillögur til úrbóta. Það er fyrst og fremst að styrkja Alþingi í stað þess að þenja út opinbera geirann og Stjórnarráðið.
Mig langar til að leiðrétta þingmanninn, hún telur að frumvarpið byggi á skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis og skýrslu þingmannanefndarinnar. Það er hreinlega rangt því að í fylgiskjali með frumvarpinu kemur fram að það byggir á skýrslu um samhenta stjórnsýslu, skýrslu nefndar sem var handvalin af forsætisráðherra. Á henni byggist frumvarpið.
Þar sem hv. þm. Álfheiður Ingadóttir er á nefndaráliti meiri hlutans langar mig að spyrja: Hvers vegna er hún á nefndarálitinu með fyrirvara ásamt fleiri þingmönnum stjórnarliðsins? (Forseti hringir.) Gæti verið að þingmennirnir séu alfarið á móti breytingartillögunum?