139. löggjafarþing — 161. fundur,  12. sept. 2011.

Stjórnarráð Íslands.

674. mál
[12:53]
Horfa

Álfheiður Ingadóttir (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil upplýsa hv. þingmann um að alsiða er að stjórnarþingmenn jafnt og stjórnarandstöðuþingmenn séu á nefndarálitum með fyrirvara. Þar hefur hver sinn háttinn á. Það er alrangt að málið sé ófullburða komið í þingið. Hv. þingmaður veit það nákvæmlega jafn vel og ég að hæstv. forseti þingsins gaf út að ljúka skyldi afgreiðslu mála og taka úr nefndum á tilteknum degi, á föstudegi ef ég man rétt, (Gripið fram í.) þau mál sem leggja ætti fyrir þingið. Þess vegna var flýtirinn á fundi þann morgun. Síðan gafst færi, sem betur fer, til að funda aftur og fara betur yfir málið. Það eru auðvitað vinnubrögð sem ber að lofa en ekki lasta, eins og allt annað, hv. þingmaður.