139. löggjafarþing — 161. fundur, 12. sept. 2011.
Stjórnarráð Íslands.
674. mál
Virðulegi forseti. Ætli ég þyrfti ekki að svara að það hafi verið hvort tveggja. Mér finnst liggja mikið við að reyna að ná samkomulagi um þetta mikla mál. Það er ekkert verra að leggja þetta undir þingið. Ég studdi málið hins vegar eins og það var þannig að það er augljóst að það er málsmeðferð sem ég get vel sætt mig við. En ef það er hægt að koma þessum málum þannig fyrir að þau kosti ekki þriggja eða fjögurra daga málþóf í þinginu er þetta mjög heppileg millileið, sýnist mér.