Stjórnarráð Íslands.
Virðulegi forseti. Varðandi seinna álitaefnið, um upplýsingalögin annars vegar og stjórnarráðsfrumvarpið hins vegar, um birtingu fundargerða og skráningu, trúnaðarmálabók og annað, tel ég að það sé mjög mikilvægt að skoða það saman. Ég ræddi það við einn hv. þingmann í allsherjarnefnd úr stjórnarliðinu áðan. Í ljós kom að menn hafa þetta ekki fullkomlega á takteinum. Við ætlum að gera einhverjar breytingar sem eiga að vera til bóta en þá verðum við líka að átta okkur á því hverjar þær eru. Til þess að við áttum okkur á þeim og getum haft eftirlit með þeim verðum við að vera komin með þær í puttana. (MÁ: Nefna þingmanninn.)
Hér er kallað fram í hvort ekki verði að nefna þingmanninn. Ég ræddi við hv. þm. Valgerði Bjarnadóttur um hvort þetta væri í upplýsingalögunum. Það er dæmi um að það er mjög mikilvægt að það sé skýrt. (Gripið fram í.) Ég tel mikilvægt (Gripið fram í.) að þessi mál séu (Forseti hringir.) lesin saman …
(Forseti (ÁI): Ég vil biðja hv. þingmenn um að hafa hljóð í salnum svo ræðumaður geti nýtt þann stutta tíma sem hann hefur til að svara andsvari.)
Þakka þér fyrir, hæstv. forseti.
Síðan varðandi hitt málið, þ.e. hvaða helstu ágallar væru á stjórnsýslunni samkvæmt þingmannanefndinni, kom mjög skýrt fram í skýrslunni að það væri mjög margt að í íslenskri stjórnsýslu, verklagi, formfestu í ráðuneytum og sjálfstæðum stofnunum sem heyra undir ráðuneytið. Svo þótti augljóst að Alþingi sjálft hefði allt of lítið sjálfstæði. Það hefur verið lenska, framkvæmdarvaldið hefur valtað yfir Alþingi í langan tíma. Ég sé ekki neinar breytingar í þessu frumvarpi sem munu breyta því einn, tveir og þrír.