Stjórnarráð Íslands.
Virðulegi forseti. Það er ekkert óeðlilegt að þetta mál sé rætt lengi, það flokkast seint undir málþóf. Raunar hefði verið mjög æskilegt ef fleiri hefðu verið í salnum til að taka þátt í þessum umræðum og hlýða á þær, einkum úr hv. stjórnarliði. Um málið er ágreiningur. Það liggur fyrir að tveir hæstv. ráðherrar eru mótfallnir málinu. Á hvaða forsendu? Jú, vegna þess að það felur í sér aukna miðstýringu og aukið foringjaræði. Það sem lyktar eins og aukin miðstýring, hljómar eins og aukin miðstýring og lítur út eins og aukin miðstýring er ekki ósennilegt að í felist aukin miðstýring. [Hlátur í þingsal.]