Stjórnarráð Íslands.
Frú forseti. Ég vil gera enn eina tilraun til að fá það fram hjá frú forseta hvenær þessum fundi verði lokið. Við ræðum hér stjórnarráðsfrumvarpið þar sem fjallað er um hvort Alþingi hafi nægt sjálfstæði og næg völd eða hvort verið sé að auka völd framkvæmdarvaldsins. Því varpa ég þeirri spurningu fram: Af hverju erum við að spyrja frú forseta að því? Hver stjórnar því hvenær fundi lýkur í kvöld? Er það forsætisnefndin? Er búið að ákveða það fyrir fram af þingmönnum allra flokka að fundi muni ljúka á miðnætti eða klukkan 11 eða 12.30 eða eitthvað slíkt eða eru það einhverjir aðrir, hugsanlega framkvæmdarvaldið, sem stjórna því hversu lengi fundurinn á að standa yfir í kvöld (Gripið fram í.) og líka á morgun? Hvað er á dagskrá? Er það virkilega þannig að framkvæmdarvaldið stýri þinginu en ekki þingið sjálft? (Gripið fram í: … ekkert breyst.)