Stjórnarráð Íslands.
Frú forseti. Þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Til að svara fyrri hlutanum langar mig að vitna til bókunar sem Atli Gíslason lagði fram en ég las upp punktana sem hann lagði þar fram í ræðu minni áðan. Mig langar að lesa upp það sem er fyrir framan og aftan þessa punkta, með leyfi forseta:
„Við atkvæðagreiðslu á þingflokksfundi VG um frumvarp um breytingu á Stjórnarráðinu mánudaginn 30. maí 2009 lagðist ég gegn framlagningu þess. Helstu rök fyrir því voru eftirfarandi …“
Svo var það talið upp. Að því loknu sagði, með leyfi frú forseta:
„Að gefnu tilefni vil ég taka fram að ég leggst almennt ekki gegn sameiningu og breyttri verkaskiptingu sem unnin er lýðræðislega frá grunni í samræmi við áðurtilvitnaða handbók séu tímasetningar réttar, enn fremur séu verkefni flutt til þeirra ráðuneyta sem rétt er að sinni þeim út frá fyrir fram þarfagreiningu og samráði við hagsmunaaðila.“
Nú er það svo að hv. þm. Atli Gíslason fór fyrir þingmannanefndinni. Í starfi sínu þar gekk honum mjög vel að ná samkomulagi um ólík sjónarmið. Í starfi sínu sem formaður sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar gekk hv. þingmanni einnig mjög vel að ná samkomulagi, jafnvel þótt þar væru mjög skiptar skoðanir og ólík sjónarmið. Um það geta samstarfsmenn hans í báðum þessum nefndum vitnað.
Af því hv. þingmaður tók þetta mál sem dæmi held ég að í ljósi þess sem þarna kemur fram þurfi ég persónulega ekki að svara þeirri spurningu, heldur kemur fram í gögnum með hvaða hætti unnið hefur verið í þessu máli þvert gegn því sem áður var sagt.
Ég kem svo að seinni hlutanum hvað varðar spurninguna um Hreyfinguna í seinna andsvari mínu.