139. löggjafarþing — 161. fundur,  12. sept. 2011.

Stjórnarráð Íslands.

674. mál
[23:31]
Horfa

Einar K. Guðfinnsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég held að það sé óumdeilt að hryggjarstykkið í þessu frumvarpi er ákvæðið í 2. gr. þar sem kveðið er á um að það sem núna er á valdi Alþingis verði fært til hæstv. forsætisráðherra. Valdið sem hæstv. forsætisráðherra fær er vald til að deila og drottna — vald til að hóta. Það er auðvitað það sem þetta frumvarp snýst um þegar grannt er skoðað.

Nú man ég mjög vel eftir umræðunni sem fór fram árið 2007. Þá var verið að gera þær breytingar einar að hægt væri með forsetaúrskurði að sameina ráðuneyti. Nú minnist ég þess mætavel hvernig þingmenn VG brugðust við því og höfðu uppi mjög stór orð, m.a. formaður Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs. Nú tökum við eftir því að þetta frumvarp er komið fram með því ákvæði sem ég vék að. Auðvitað hafa allir rétt á að skipta um skoðun. Hæstv. fjármálaráðherra hefur gert það manna mest og best eins og menn vita á þessu kjörtímabili. Það er út af fyrir sig ekkert að því að komast efnislega að annarri niðurstöðu — (Gripið fram í.) til dæmis læra menn af reynslunni sem gerir það að verkum að hv. þingmenn eða ráðherrar komast að annarri niðurstöðu en þeir höfðu komist að áður.

Ég varpa því fram til hv. þm. Ásmundar Einars Daðasonar hvort hann átti sig á því hvað hafi gerst í stjórnarsamstarfinu sem hafi orðið þess valdandi að hæstv. fjármálaráðherra og flokkur hans virðast vera komin á þá skoðun að það sé mjög mikilvægt að færa þetta vald frá Alþingi til hæstv. forsætisráðherra, hvort það sé eitthvað í samstarfi flokkanna við tiltekna ráðherra til dæmis sem geri það að verkum að þessi stjórnmálaflokkur, VG, hafi allt í einu komist að þeirri niðurstöðu að það sem þeir sögðu árið 2007 sé tómt bull og vitleysa, svo ég orði það eins og hæstv. forsætisráðherra, og þess vegna (Forseti hringir.) þurfi að auka vald hæstv. forsætisráðherra á kostnað Alþingis.