Stjórnarráð Íslands.
Virðulegur forseti. Ég held að við ættum að reyna að ræða þetta mál eins mikið og lengi eins og við mögulega getum. Það er leiðinlegt að heyra það sem fram kom í ræðu eins hv. þingmanns. Það eru ekki næturfundir sem slíkir sem hafa áhrif á virðingu Alþingis, það hvort menn ræða mál fram eftir kvöldi eða nóttu hefur engin áhrif á það að mínu mati. Innihalds- og samhengislaust þvaður um ekkert hefur hins vegar afgerandi áhrif á virðingu þingsins og hægt er að halda slíku uppi hvenær sem er sólarhringsins, eins og við höfum orðið vitni að. (Gripið fram í.)