Stjórnarráð Íslands.
Enda þótt einir fjórir hv. þingmenn óski enn eftir að ræða fundarstjórn forseta vill forseti taka fram að það eru enn þá nokkuð margir á mælendaskrá, einir 13 þingmenn sem óska eftir að ræða þetta mál. Spurt var að því hvort ekki þyrfti að gera þeim viðvart ef halda þyrfti áfram eitthvað inn í nóttina. Því er til að svara að 10 þeirra eru enn í húsi svo það ætti ekki að hamla.
Þá vill forseti taka fram að í dag fór fram atkvæðagreiðsla í þingsal þar sem samþykkt var að þingfundur mundi standa lengur en þingsköp kveða á um. (Gripið fram í: Þingfundur ... í dag.) Með þeim skýringum hyggst forseti nú halda þessum umræðum og þingfundi áfram enn um sinn.