139. löggjafarþing — 161. fundur,  13. sept. 2011.

Stjórnarráð Íslands.

674. mál
[00:01]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég bíð enn eftir að virðulegi forseti svari spurningunni. Hann sagði að eitthvað yrði haldið áfram, það er ekkert svar.

Hv. þm. Róbert Marshall virðist ekki muna hvað hann sagði í fyrri ræðu en ég skrifaði það niður eftir honum. Hann sagði að fram færi innihaldslaust og samhengislaust þvaður. Ég veit ekki hvernig hann náði tengingu við að það mundi auka veg og virðingu þingsins að tala með þeim hætti og ég veit heldur ekki hvernig þessi síðasta ræða hans ætti að ná því takmarki. En það vakti þó athygli mína á því að hann væri að reyna að gera það tortryggilegt að það væri einhver umræða um formannsmál í Sjálfstæðisflokknum og sagði að menn væru að koma sér saman um það hver væri formaður til lengri tíma. Það þýðir væntanlega að það liggur alveg fyrir hjá Samfylkingunni og það eru verstu fréttir sem þjóðin hefur fengið mjög lengi að við skulum sitja uppi með hæstv. forsætisráðherra sem formann í stjórnmálaflokki í lengri tíma.