Stjórnarráð Íslands.
Hæstv. forseti. Þetta hefur um margt verið mjög athyglisverð umræða. Ég hlýt að nálgast viðfangsefnið lítillega út frá skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis og þingmannanefndarinnar sem var falið að kryfja þá skýrslu.
Mig langar að spyrja hv. þingmann sem er í allsherjarnefnd, aðeins út í vinnulagið varðandi kaflann um stjórnun og eftirlitsheimildir ráðherra. Nú er það þungamiðjan í niðurstöðum rannsóknarnefndar Alþingis að eftirlit hafi brugðist. Mér þykir sá kafli í frumvarpinu, sem er um margt ágætt og margt í því viðleitni í þá átt að reyna að taka á ýmsum álitaefnum, ansi rýr. Ef maður les síðan greinargerðina með þá er aðallega talað um það sem á ekki að fjalla um í lögunum.
Mér finnst svolítið sérkennilegt að ekki sé reynt að taka betur utan um þetta efni og mig langar að spyrja hv. þingmann út í umræðuna í allsherjarnefnd um þennan kafla. Var ekki nein umræða í þá átt að reyna að skýra atriðin varðandi eftirlitsheimildir ráðherra nánar? Ég spyr sérstaklega í ljósi þess að það er þungamiðjan í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis og þar af leiðandi hefði maður haldið að fókusinn í vinnunni við að skrifa frumvarpið yrði talsvert mikill á þessu atriði.