Stjórnarráð Íslands.
Hæstv. forseti. Ég verð að biðja hv. þingmenn velvirðingar ef þeim finnst ég tala tungum tveim í þessum efnum. Annars vegar ætla ég að segja frá eigin brjósti að vissulega hefðum við mátt ræða þessa hluti betur. Við vekjum athygli á því í nefndaráliti okkar að ákveðin spurning standi enn þá opin varðandi hugsanleg afskipti ráðherra af málsmeðferð hjá sjálfstæðum stjórnvöldum sem undir þá heyra. Ég get alveg tekið undir að þetta er atriði sem þyrfti að skýra nánar.
Ég ætla hins vegar ekki að gera lítið úr því að allsherjarnefnd ræddi málið töluvert mikið. Ég hefði auðvitað kosið, eins og menn sáu af afgreiðslu málsins út úr nefndinni, að það væri tekið til nánari athugunar. Einstök atriði í frumvarpinu fengu ítarlega umræðu í nefndinni en það verður þó um leið að viðurkennast að þetta var kannski ekki eitt af þeim atriðum sem fékk hvað mesta athygli í störfum nefndarinnar. Aðrir þættir tóku meiri tíma í störfum hennar.
Á þessu þarf að taka, allir eru sammála um að þarf að gera. Það er enginn ágreiningur um það innan allsherjarnefndar eða milli þingmanna mér vitanlega að æskilegt sé og gott að skýra frekar valdheimildir ráðherra hvað varðar stofnanir sem undir þá heyra heldur en er í dag. Það eru allir sammála um það.
Ég veit hins vegar ekki hversu langt á að ganga í lagatexta eða lagasmíð um það. Það verða að vera ákveðnar meginlínur, (Forseti hringir.) ákveðinn rammi í lögunum en það er kannski ekki hægt að skrifa upp nákvæmlega hvernig samskiptin eiga að vera í öllum tilvikum.