Stjórnarráð Íslands.
Virðulegi forseti. Ég er að mörgu leyti sammála því markmiði sem hv. þingmaður lýsti, að við hefðum einhvers konar fagráðuneyti og síðan kæmu menn í pólitískar stöður og færu svipað og gerist t.d. í Bandaríkjunum. Ég er að mörgu leyti sammála þingmanninum um það. Eins og þetta frumvarp er lagt upp er aftur á móti á engan hátt tryggt að svo verði. Það eina sem þetta gerir er að það verður hægt að fjölga pólitískum aðstoðarmönnum. Af hverju á þá ekki að ganga alla leið ef þingmaðurinn vill ná fram þessum markmiðum sínum og hafa það eins og í Bandaríkjunum og skipta um ráðuneytisstjóra með ráðherra og hafa síðan einhverja pólitíska ráðgjafa, að nákvæmlega þannig hóp yrði skipt út? Hér er bara hægt að hlaða inn pólitískum pótintátum án þess að nokkuð breytist frá því sem nú er.