Stjórnarráð Íslands.
Ég biðst afsökunar, hæstv. forseti, á því að ég þurfti aðeins að hugsa mig um hvort ég ætti að falla frá andsvarinu eða ekki. Þegar ég kom hér inn í miðja ræðu hv. þingmanns var ég hugsi yfir því hvort ég hefði misst af einhverju í dagskránni, hvort við værum að ræða hér frumvarp um Stjórnarráð Íslands. Það var eins og að koma inn í ræðu frá McCarthy-tímabilinu, slíkur var málflutningurinn og í raun vart svaraverður. Staðhæfingar, fullyrðingar, stóryrði sem fást ekki staðist um þá sem vanda vinnu sína, skoða málin. Hér voru stór orð látin falla í garð formanns Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs sem ég hvet alla áheyrendur til að meta og sjá hvers lags málflutningur hér hefur verið á ferð.
Þau dæma sig sjálf, orð hv. þingmanns, sem og annar málflutningur sem hann stendur hér oft og tíðum fyrir þar sem stóriðjustefnan og markaðsstefnan á að vaða yfir eins og við eigum ekki að hafa lært af þeirri reynslu (Forseti hringir.) sem við súpum enn seyðið af eftir hrunið.