Stjórnarráð Íslands.
Virðulegi forseti. Ég held að það sé alveg rétt sem hv. þingmaður bendir á, það er alltaf mikil hætta á því að oddvitaræðið finni sér farveg. Það er bara eðli stjórnmálanna og eðli stjórnsýslu hvar sem er um heiminn. Oddvitinn er leiðtogi eða foringi eftir atvikum og það ræði finnur sér alltaf farveg. En það á ekki að auðvelda það og það skiptir miklu máli að vera ekki að losa um ákveðnar leikreglur sem eru ankerisfestar, ekki bara í blíðu og velgengni heldur líka í stórsjó, brimi og berjandi veðri. Það skiptir miklu máli að þetta sé samfella sem menn geta búið við, treyst á þó að þeir séu ekki endilega alltaf sammála öllum þáttum í því.