Stjórnarráð Íslands.
Virðulegi forseti. Það sem ég átti fyrst og fremst við var þegar beðið er um andsvör og ekki farið í andsvör, hvort sem þau eru eitt eða tvö eins og við sáum hér áðan. Ég held að það sé mikilvægt að við nýtum þann tíma sem við höfum af því að tíminn er að sjálfsögðu takmarkaður sem þingmenn hafa til umræðna. Þar af leiðandi er ég ósáttur við það, ef þetta verður raunin, að menn biðji um andsvör og falli svo alfarið frá þeim.
Það er rétt hjá hv. þingmanni að það getur ekki verið skylda að menn nýti bæði andsvörin. Við berum að sjálfsögðu fulla virðingu fyrir því. En ég átti við hitt að ef menn fara að leika það að biðja um andsvör og falla svo algjörlega frá þeim þá sæmir það vitanlega ekki því sem við erum væntanlega að praktísera hér, þ.e. lýðræðislega, réttláta og sanngjarna umræðu um þetta stóra mál.