Stjórnarráð Íslands.
Virðulegi forseti. Mér hefur nú oft ofboðið í þingsal en núna, og ég biðst afsökunar á orðbragðinu, er þetta eins og að vera á róló. Fyrst koma þeir sem eyða hér tíma og tala út í eitt í tvöföldum tíma og færri ræður en hinar eru málefnalegar. Og klaga í forseta af því að öll andsvör eru ekki notuð út í eitt. Síðan kemur hv. þm. Vigdís Hauksdóttir og klagar út af því að henni líkaði ekki svipbrigði forseta. (Gripið fram í: Það var …) Á þjóðin þetta skilið? (Gripið fram í: Að hafa þennan forseta, meinarðu?) Fyrirgefið, hv. þingmaður, virðulegi forseti. Mér er (Forseti hringir.) algjörlega misboðið.