139. löggjafarþing — 162. fundur,  13. sept. 2011.

Stjórnarráð Íslands.

674. mál
[18:29]
Horfa

Álfheiður Ingadóttir (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég hvet hv. þm. Vigdísi Hauksdóttur til þess að hlusta á það sem þingmenn segja í ræðustól. Ég lýsti því mjög skilmerkilega áðan að ég hefði ekki gert upp hug minn varðandi breytingartillögu um hljóðritanir á fundum ríkisstjórnar. Það er ekki vegna þess að ég telji að 30 ár til eða frá sé aðalatriði í þeim efnum, eins og hv. þingmaður gaf í skyn, heldur þvert á móti held ég að sama hversu langt eða stutt inn í framtíðina menn tala ef þeir tala í hljóðnema þá verði annar bragur á ríkisstjórnarfundum. Þess vegna, frú forseti, hef ég hlustað mjög grannt eftir því hvað aðrir þingmenn hafa um þetta sagt. Ég mun mynda mér afstöðu til þessarar tillögu m.a. á grunni þess því að í þingsal eru mjög margir reyndir þingmenn sem hafa margir hverjir setið í ríkisstjórn og geta þess vegna haft eitthvað til málanna að leggja.