139. löggjafarþing — 162. fundur,  13. sept. 2011.

Stjórnarráð Íslands.

674. mál
[18:30]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta allshn. (Vigdís Hauksdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þá vitum við það skýrt að hv. þingmaður hefur ekki gert upp afstöðu sína. Það gefur vísbendingu um að frumvarpið falli.

Hv. þm. Þór Saari og hv. þm. Þráinn Bertelsson gerðu það að úrslitakosti í allsherjarnefnd að setja þetta í breytingartillöguformi inn í þingið til þess að tryggja stuðning þeirra við frumvarpið.

Það kæmi mér mjög á óvart ef þingmenn Vinstri grænna mundu greiða atkvæði á móti þessu og þar með væri frumvarpið fallið eins og ég sagði og yrði þá ekki að lögum. Eins og allir vita eru breytingartillögur teknar fyrst fyrir til afgreiðslu í þinginu og falli þær fellur frumvarpið.

Varðandi aðstoðarmennina sem hv. þingmaður fór yfir: Finnst hv. þingmanni ekki fullmikið í lagt að fjölga svo mjög í embættismannakerfi ráðuneytanna á meðan Alþingi, sjálfur löggjafinn, er algjörlega fjársvelt?