139. löggjafarþing — 162. fundur,  13. sept. 2011.

Stjórnarráð Íslands.

674. mál
[18:36]
Horfa

Álfheiður Ingadóttir (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég tel í reynd að öll þau ákvæði sem hér er gerð tillaga um að leiða í lög séu brýn. Ég tel að það hafi komið okkur illilega í koll að hafa ekki meiri festu í Stjórnarráðinu. Með þessu frumvarpi er þó ekki verið að njörva neitt niður heldur er líka verið að tryggja tiltekinn sveigjanleika.

Ég tel líka að þegar búið er að leggja gríðarlega mikla vinnu í mál eigi ekki að ástæðulausu að láta það liggja á milli þinga. Við vitum að þá þarf að taka málið inn upp á nýtt eins og okkar þingsköpum er háttað, þau eru ekki þannig í öllum ríkjum. Það þýðir í rauninni endurtekningu á vinnunni, leitað er eftir umsögnum á nýjan leik og svo byrjar ballið.

Ég tel því, frú forseti, eins og ég sagði áðan, að málið sé fullunnið og þess vegna sé tímabært að afgreiða það.