Stjórnarráð Íslands.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Það er eitt sem mig langar að eiga orðastað við hv. þingmann um af því að þingmaðurinn á sæti í allsherjarnefnd. Það varðar 21. gr.
Ég hef haft þá skoðun að skynsamlegra sé að ráða inn í Stjórnarráðið í heild sinni. Samkvæmt 21. gr. er hægt að færa til starfsmann innan Stjórnarráðsins ef ráðherrarnir verða sammála um að gera það og starfsmaðurinn samþykkir það. Mig langar að kalla eftir skoðun hv. þingmanns á því og spyrja hvort þetta hafi verið mikið rætt í allsherjarnefnd. Ég tel mjög skynsamlegt að ráða inn í Stjórnarráðið í heild sinni en ekki inn í einstaka ráðuneyti þannig að þegar starfsfólk er fært til í Stjórnarráðinu þá séu menn ekki ráðnir í ákveðið ráðuneyti heldur inn í Stjórnarráðið í heild sinni. Ég held að þetta muni geta orðið til bóta, einmitt þegar mismunandi álag er í ráðuneytum. Ég kalla eftir viðbrögðum hv. þingmanns við hugmyndum mínum um að (Forseti hringir.) gera þetta svona.