Stjórnarráð Íslands.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta svar. Ég gæti vel fellt mig við þá hugmynd sem hann lýsir. Ég tek fram að ég hef ekki lesið tillögutextann. Ég tel að þetta gæti orðið málamiðlun. Annars vegar héldist þá sú meginstefna frumvarpsins að það væri framkvæmdarvaldsins að skipuleggja sig og þingsins að skipta um menn í framkvæmdarvaldinu ef skipulagið þætti vera slæmt eða illt, en hins vegar væri þeim skylt að bera málið undir þingið með þessum hætti og þyrftu þá að fá meiri hluta á þinginu, annaðhvort þann sem þeir styðjast við alla jafna eða aukinn meiri hluta eftir atvikum fyrir þessari breytingu. Ég tel að þetta gæti orðið ágætismálamiðlun og væri þá til nokkurs unnið með allt það málþóf sem hv. þingmenn hafa staðið fyrir, einkum þó sú sem gengur nú í salinn, hv. þm. Ragnheiður Elín Árnadóttir, og vill þó ekki kannast við það.